Viltu kynnast náttúrunni og landinu á nýjan hátt? Viltu eiga frábært ævintýri með góðum vinum eða kynnast nýju fólki? Viltu stinga af og njóta einstakrar náttúrufegurðar Vestfjarða? Hefur þig dreymt um að róa á spegilsléttum sjó innan um seli og sjófugla. Nú er tækifærið! Komdu vestur í Ísafjarðardjúp á kajaknámskeið með Veigu Grétarsdóttur hringfara.
Námskeið þessi verða haldin í samstarfi við ferðaskrifstofuna Borea og Sveitahótelið í Heydal. Námskeiðið er sniðið að byrjendum í kajakróðri og fyrir þá sem eru lengra komnir en vilja bæta við reynsluna. Farið verður í gegnum grunnatriði, svo sem áratök, róðratækni, bjarganir og eins hvernig er best að umgangast kajakinn og búnaðinn sem nota þarf í sportið. Hluti kennslunnar fer fram innandyra en megnið á sjó þar sem verður róið á milli staða og út í eyjar ef veður leyfir, þar sem fólki gefst kostur á njóta kyrrðarinnar í óspilltri náttúrunni.
Tilvalið fyrir vinkonuhópa, vinahópa. Hámark 8 manns á námskeiði en lágmark 4 manns
Verð per mann er 70.000. kr í tveggja manna herbergi en 75.000. kr í einstaklingsherbergi.
Staðfestingargjald: 15.000 isk / mann ( ath. staðfestingargjald er óendurkræft nema námskeið falli niður )
Innifalið í verðinu er:
- Kajaknámskeið
- Kajak, þurrgalli og allt sem til þarf
- Gisting í 3 nætur
- Morgunmatur í 3 daga
- Smurt nesti fyrir daginn
Dagsetningar:
- 28. – 31. janúar – Opið fyrir bókanir
- 04. – 07. febrúar – Opið fyrir bókanir
- 11. – 14. febrúar – Opið fyrir bókanir
- 18. – 21. febrúar – Opið fyrir bókanir – 7 pláss laus
- 25. – 28. febrúar – Opið fyrir bókanir
- 04. – 07. mars – Opið fyrir bókanir – Uppselt
- 11. – 14. mars – Opið fyrir bókanir – 1 pláss laus
- 18. – 21. mars – Uppselt
- 25. – 28. mars – Uppselt
Athugið að námskeiðið getur fallið niður vegna veðurs.
Bókanir og frekari upplýsingar á veiga@veiga.is
Heydalur Borea Adventures
https://www.heydalur.is/is https://www.boreaadventures.com/