All Posts By

Veiga

Fylgdu hjartanu / Follow your heart

By | Blogg | No Comments

English below

Áramótin 2017-18 var ég að róa með Guðna Páli sem réri hringinn í kringum Ísland 2013 og var að spyrja hann út í ferðina hans, hvernig allt hefði gengið og hversu kostnaðarsöm ferðin hafði verið. Ég man að mig langaði mikið til að feta í fótspor hans og róa hringinn en hugsaði með mér að ég hefði aldrei tök á því, að ég hefði ekki það sem til þyrfti né efni á því þannig að ég hætti að hugsa út í þetta. En svo í maí fyrir ári síðan þá kom þessi hugmynd aftur upp og ég fór að velta fyrir mér hvernig ég gæti framkvæmt þessa hugmynd mína, ég var orðin sannfærð um að ég gæti þetta en vantaði bara að útvega mér allan búnað fyrir ferðina en það er mikið af góðum búnaði sem maður þarf í svona ferð. Ég fór að velta fyrir að hafa samband við fyrirtæki og leita eftir styrkjum, hugsaði fyrst með mér að það ætti enginn eftir að styrkja mig en ég ákvað samt að prufa og hafði samband við Cintamani og sagði þeim frá mér og minni hugmynd um að róa hringinn og safna áheitum fyrir Píeta. Viti menn, þeir sögðu já og þá fór boltinn að rúlla. Nú í dag er ég búin að fá allan þann besta búnað fyrir svona ferð sem völ er á þökk sé Cintamani, Fjallakofanum, Garminbúðinni, Vélasölunni, Epli, Rockpool Kayaks, Kokatat, Lendal og síðast en ekki síst Premis fyrir að gera þessa heimasíðu fyrir mig svo fólk geti fylgst með ferðinni.
Áætluð brottför er um 12-13 maí en þá ætla ég að vera tilbúin, búin að pakka og gera allt klárt og leggja af stað um leið og veður leyfir.

I was paddling with Guðni Páll around the New Year 2017-18 and I got the chance to ask him about his round tour, how it went and how expensive the whole tour was. I remember clearly how I wished I could circumnavigate Iceland but I though I’d never be able to do it, I wouldn’t have what it takes and besides, I wouldn’t afford it so I just stopped dreaming. In May, the idea hit me again and I started wondering how I cold let the dream come true. I was convinced that I could do it, but I needed to provide all the equipment for the trip. At first I thought that nobody would support me but I still decided to try to contact Cintamani and told them about me and my idea to circumnavigate Iceland and raise funds for organisation Pieta. Much to my surprise they said yes. That’s when the ball began to roll. Today I´ve got all the best equipment on the market for my journey thanks to Cintamani, Fjallakofinn, Garminbúðin, Vélasalan, Epli, Rockpool Kayaks, Kokatat, Lendal and at last Premis for making this website for me so people can follow me on my journey

Estimated departure is around 12-13 May, depending on the weather, but I need to be all packed and ready as soon as the weather allows.

Fyrirlestur í Hörpu 11 maí / Open talk in Harpa may 11th

By | Fyrirlestrar | No Comments

English below

Spennandi tímar framundan. 11 maí verð ég með fyrirlestur í Björtulofti í Hörpunni þar sem ég mun tala um kynleiðréttingarferlið sem ég gekk í gegnum frá áronum 2014 til 2017 en mun einnig fara aðeins inná æskuna, lífið í dag eftir leiðréttingu og eins muninn á því hvernig er að vera kona í samfélaginu í stað karls.  En dagskrána er hægt að skoða hér að neðan.

Harpa 11 maí

have exciting times coming up. On May the 11th I‘m giving a speach at Björtuloft in Harpa, where I will talk about the gender reassignment process I went through during 2014-2017. I will also dig into my youth and my life today, after my transformation as well as how it is to be a woman in the society vs. to be a man. You can view the agenda here below.

Harpa 11 maí

Viðtal við mig Í Landanum / Tv Interview with me

By | Viðtöl | No Comments

English below

Hún Halla Mía fréttaritari hjá Rúv á Vestfjörðum kom og heimsóti mig inn í Reykjanes þar sem ég var í æfingaferð og tók smá viðtal við mig fyrir Landann um undirbúning minn fyrir hringferðina mína í sumar og kynleiðréttingaferlið sem ég gekk í gegnum en hér fyrir neðan getið þið séð afraksturinn.

http://www.ruv.is/frett/raer-a-moti-straumnum-umhverfis-landid

Halla Mía, news reporter at Rúv á Vestfjörðum came by and visited me in Reykjanes where I was on a training tour and she interviewed me for Landinn about my preparation for the round trip this summer and the gender reassignment process I went through. You can see the outcome here below.

http://www.ruv.is/frett/raer-a-moti-straumnum-umhverfis-landid

Inreach mini frá Garmin / Inreach mini from Garmin

By | Uppáhalds búnaðurinn minn | No Comments

English below

Ég fékk mjög svo óvæntan glaðning í síðustu viku en þá gaf Rikki í Garmin búðinni mér Inreach mini tæki frá Garmin en það á eftir að koma sér vel á ferð minni um landið í sumar og í náinni framtíð. Með þessu tæki er hægt að fylgjast með hvar ég er stödd á landinu en tækið sendir frá sér staðsetninguna mína á 10 mínútna fresti og þannig hægt að sjá hvar ég er og hvert ég stefni. Eins get ég sent frá mér og tekið á móti skilaboðum hvar sem ég er stödd í heiminum án þess að vera í símasambandi og látið mína nánustu vita af ferðum mínum. Það allra besta við þetta tæki er að það er eitt besta öryggistæki sem ég get verið með því ég get líka sent út neyðarboð og þá fá viðkomandi björgunaraðilar allar upplýsingar um hvar ég er stödd, hver ég er og hvað ég er að gera en þá geta þeir einnig sent mér skilaboð og látið mig vita hvernig björgun verður háttað.Ég er honum Rikka virkilega þakklát fyrir allann stuðninginn og hjálpina sem ég hef fengið hjá honum fyrir þessa ferð ?

Þið getið skoðað þetta tæki betur hér.

https://www.garminbudin.is/vorur/garmin/utivistin/inreach-mini-gray/

 

I received a nice surprice last week when Rikki in Garminbúðin gave me Garmin Inreach mini. This small satellite communicator will come in handy on my way paddling around Iceland during the summer, and in the nearest future of course. With this tiny equipment people can keep track on me since the communicator sends my location every 10 minutes to a satellite so it‘s easy to keep track on where I am and where I‘m heading. No telephone service is needed. I can use the communicator to send messages (and receive messages) from any location in the world to communicate to my closest relatives how I‘m doing. The best feature of the communicator is that it‘s one of the best safety equipment I can use on sea because I can send out emergency signal that brings info to the rescue team about my location, who‘s in trouble and what I‘m doing. The rescue team can send back messages about how they will rescue me. I´m so grateful for all of Rikki‘s support and help during the preparation of my tour.

You can take a closer look at the Garmin Inreach communicator here. 

https://www.garminbudin.is/vorur/garmin/utivistin/inreach-mini-gray/